Skútur við flotbryggju félagsins

Siglingafélag Reykjavíkur - Brokey

NÁMSKEIÐ KÆNUR

Fyrsta siglingin

Á þessu námskeiði er lögð áhersla á að leyfa krökkum að kynnast siglingum, njóta þess að sigla, vera hluti af áhöfn og finna fyrir öryggi á sjónum.

Á þessu námskeiði eru kennd grunnatriði í kænusiglingum. Lögð er áhersla á að finna fyrir öryggi í bátnum og að læra að nota bæði segl og stýri.

Á þessu námskeiði sigla þátttakendur tveir og tveir saman í bátum af tegundinni Topper Topaz og/eða RS Feva og læra því bæði hlutverk stýrimanns og áhafnar.

NÁMSKEIÐ SKÚTUR

Seglskútunámskeiðin Hæfur háseti eru fyrir 18 ára og eldri og fara þannig fram að siglt er á Secret 26 bát félagsins með skipstjóra. Námskeiðin eru þjálfun í siglingum og er farið yfir grundvallaratriði siglinga sem er góður undirbúningur fyrir verklegan hluta skemmtibátaprófs. Námskeiðið hentar jafnt fyrir byrjendur og lengra komna.

Hægt er að velja tveggja eða fjögurra kvölda námskeið, hvert skipti er þrjár klukkustundir.. Lengri námskeiðin eru kennd mánudags-fimmtudagskvöld og styttri námskeiðin eru kennd mánudags- og miðvikudagskvöld.

Kynningarnámskeið eru hugsuð til að gefa áhugasömum og forvitnum kost á að prófa að sigla á skútu, en lengra komnir geta einnig nýtt námskeiðin sem þjálfun eða til skemmtunar.

Fréttir

UM BROKEY

Markmið félagsins er að iðka siglingaíþróttir, örva áhuga fólks á siglingum og vatnaíþróttum almennt og stuðla að bættri aðstöðu til iðkunar þeirra.