Skráning í Siglingafélag Reykjavíkur – Brokey
Skráning er framkvæmd í gegnum Sportabler.
Þegar hefur verið gengið frá skráningu og greiðslu félagsgjalds ert þú orðinn fullgildur meðlimur Siglingafélags Reykjavíkur - Brokey.
Félagið stendur fyrir fjölmörgum viðburðum yfir árið, hópsiglingum, siglingakeppnum og siglinganámskeiðum.
Félagið starfar á tveim stöðum, í Nauthólsvík er aðstaða fyrir kænusiglingar. Kænur eru litlir seglbátar, ca 3-6 metrar á lengd, fyrir einn eða fleiri. Haldin eru kænunámskeið fyrir börn, unglinga og fullorðna.
Á Ingólfsgarði er aðstaða fyrir seglskútur. Félagið á tvær skútur, Sigurvon og Gullu Grönnu sem eru 26 feta (7.9m) Secret bátar, smíðaðir í Hveragerði árið 1994.
Félagsaðild er nauðsynleg til þess að nýta aðstöðu félagsins en ýmsir viðburðir félagsins eru opnir öllum, t.d. þriðjudagskeppnirnar, siglinganámskeið og skútukaffi á laugardagsmorgnum. Skipulagðar skemmtisiglingar á Sigurvon eru ókeypis fyrir félagsmenn.