Námskeið
Námskeið
Siglingaskólinn hjá Siglingafélagi Reykjavíkur
Siglingafélag Reykjavíkur, Brokey, býður upp á fullt af skemmtilegum námskeiðum í sumar fyrir öll, bæði byrjendur og lengra komna. Við höfum tekið upp nýja námskrá sem hefur verið unnin í samstarfi við Alþjóða Siglingasambandið (World Sailing) og Siglingasamband Íslands (SÍL).
Námskeiðin eru haldin á Nauthólsvegi 100, í sama húsi og Bragginn, rétt fyrir ofan Nauthólsvík.
Fyrsta Siglingin, Stig 1 og Stig 2 eru kennd alla virka daga í frá 8. júní og út júlí milli 9 og 12 í eina viku í senn.
Skráning á öll námskeiðin fer fram í gegnum Sportabler og hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir þau.
Fyrsta siglingin (6-8 ára)
Á þessu námskeiði er lögð áhersla á að leyfa krökkum að kynnast siglingum, njóta þess að sigla, vera hluti af áhöfn og finna fyrir öryggi á sjónum. Leiðbeinandi siglir ásamt nemendum á kænum af tegundinni RS Quest og þannig kynnast þau grunnatriðum í siglingum. Þátttakendur eru hvattir til að taka í stýri og taka þátt í seglastillingum.
Aldur: 6-8 ára
5 virkir dagara 3 tímar í senn
Verð: 25.000 - 29.000 kr
Stig 1 - Byrjendanámskeið (9-15 ára)
Skemmtilegt námskeið fyrir börn á aldrinum 9-15 ára þar sem grunnatriði í siglingum eru kennd. Aðaláhersla er lögð á öryggi og skemmtun og að öll hafi jákvæða upplifun og skemmti sér á sjónum. Vikunámskeið sem kennd eru annars vegar fyrir hádegi og hins vegar eftir hádegi.
Aldur: 9-15 ára
5 virkir dagara 3 tímar í senn
Verð: 25.000 - 29.000 kr
Stig 2 - Sigldu betur (9-15 ára)
Þetta er framhaldsnámskeið sem tekur við af byrjendanámskeiðinu. Á þessu námskeiði sigla þátttakendur tvö og tvö saman og læra því bæði hlutverk stýrimanns og áhafnar og læra því mikilvægi samvinnu og góðra samskipta úti á sjó.
Aldur: 9-15 ára
5 virkir dagara 3 tímar í senn
Verð: 25.000 - 29.000 kr
Fullorðinsnámskeið (16+ ára)
Byrjendanámskeið fyrir fullorðna sem vilja læra að sigla kænu. Siglt er á 3-4 manna kænu sem kallast RS Quest með leiðbeinanda um borð. Í lok námskeiðs er ætlast til að þátttakendur nái færni á við Stig 1 sem felur í sér að taka vendingar, sigla hliðarvind og lága beitingu ásamt því að gera riggað bát með lágmarks aðstoð. Ef vel gengur er hægt að setja markið hærra. Möguleiki verður á algjörlega sjálfstærði siglingu. Námskeiðið stendur yfir í tvo daga, laugardaga og sunnudag, þrír tímar í senn.
Aldur: 16+ ára
Laugardagur og sunnudagur, 3 tímar í senn
Verð: 40.000 kr
Ævintýrahópur
Að loknu stigi 2, bjóðum við upp á ævintýrahóp.
Markmið hópsins er að kenna siglingar í gegnum leik í og skemmtun og að þátttakendur öðlist sjálfstæði og geti siglt án aðstoðar.
Hópurinn er mánudaga - fimmtudaga kl 13:00 - 15:00 og er frjáls mæting yfir allt sumarið (júní & júlí).
Ævintýrahópur, áætlun sumarsins:
Mánudaga kl. 13:00 - 15:30
Fimmtudaga kl. 13:00 - 15:30
Verð fyrir allt sumarið er 75.000 kr
Æfingahópur
Markmið æfingahóps er að undirbúa þátttakendur fyrir keppnir og æfa kappsiglingar. Hópurinn er mjög virkur í keppnum bæði innan og utanlands og hafa meðlimir síðustu árin unnið fjölmarga íslandsmeistaratitla og tekið þátt í hinum ýmsu landsliðsverkefnum, meðal annars heimsmeistaramótum, evrópumótum og norðurlandamótum.
Æfingahópur, áætlun sumarsins:
Mánudaga kl. 16:30 - 19:30
Miðvikudaga kl. 16:30 - 19:30
Fimmtudag kl. 16:30 - 19:30
Laugardaga kl. 11:00 - 15:00
Verð fyrir allt sumarið:
45.000 kr (án bátaleigu)
75.000 kr (ásamt leigu á Optimist)
85.000 kr (ásamt leigu á ILCA)
Þjálfarar eru:
Gunnar Kristinn Óskarsson, yfirþjálfari
Ásgeir Kjartansson, þjálfari