Fréttir
Fréttir
Líkt og gestir aðalfundar, sem haldinn var þann 22. janúar sl., vita þá tafðist vinna við ársreikning og ákvað því aðalfundur að fresta framlagningu hans og allra annarra dagskrárliða utan skýrslu stjórnar til fimmtudagsins 5. febrúar kl. 18:00 - í félagsheimilinu í Nauthólsvík.
Dagskrá framhaldsaðalfundar:
1. Setning aðalfundar og kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Reikningar lagðir fram og útskýrðir.
3. Umræða um reikninga.
4. Reikningar bornir upp til samþykktar.
5. Lagðar fram tillögur að lagabreytingum og bornar undir atkvæði.
6. Kosning formanns.
7. Kosning tveggja meðstjórnenda sem eru með tveggja ára kjörtímabil og tveggja varamanna sem skipta með sér verkum.
8. Kosning tveggja skoðunarmanna.
9. Ákvörðun félagsgjalda.
10. Önnur mál.
11. Fundarslit.
Við hvetjum félagsmenn til að taka virkan þátt í starfi félagsins og bjóða fram krafta sína í stjórn eða nefndastörf á komandi starfsári.
Þeir sem vilja bjóða sig fram til stjórnar eða formanns geta tilkynnt framboð með því að senda tölvupóst á brokey@brokey.is.
Það er samt ekki skilyrði fyrir framboði að tilkynna það fyrirfram og vel hægt að bjóða sig fram á fundinum sjálfum.
Lögð fram á aðalfundi.
Stjórn hefur borist eftirfarandi tillaga að breytingu á lögum félagsins:
4. gr. laga félagsins verði breytt á eftirfarandi máta: 4. grein Félagið skal starfa í deildum eftir íþróttagreinum og hefur hver deild deildarstjóra.
Núverandi grein hljóðar svo:
4. grein. Félagið skal starfa í deildum, s.s. kjölbátadeild og kænudeild
Tillagan verður tekin fyrir á aðalfundi og hlýtur samþykki ef 2/3 greiddra atkvæða samþykkja hana. Auðir og ógildir seðlar teljast ekki með.
Aðalfundur Siglingafélags Reykjavíkur – Brokeyjar verður haldinn í húsnæði félagsins í Nauthólsvík þ. 22. janúar kl. 18:00.
Atkvæðisrétt á fundum félagsins og kjörgengi hafa allir skráðir félagar sem greitt hafa tilskilin gjöld.
Stjórn er skipuð fjórum einstaklingum og formanni og er kosið um tvo stjórnarmenn árlega og sitja þeir til tveggja ára. Formaður er kjörinn til árs í senn.
Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:
1. Setning aðalfundar og kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar lögð fram.
3. Skýrslur nefnda lagðar fram.
4. Reikningar lagðir fram og útskýrðir.
5. Umræða um skýrslu stjórnar, nefnda og reikninga.
6. Reikningar bornir upp til samþykktar.
7. Lagðar fram tillögur að lagabreytingum og bornar undir atkvæði.
8. Kosning formanns.
9. Kosning tveggja meðstjórnenda sem eru með tveggja ára kjörtímabil og tveggja varamanna sem skipta með sér verkum.
10. Kosning tveggja skoðunarmanna.
11. Ákvörðun félagsgjalda.
12. Önnur mál.
13. Fundarslit.
Við hvetjum félagsmenn til að taka virkan þátt í starfi félagsins og bjóða fram krafta sína í stjórn eða nefndastörf á komandi starfsári.
Þeir sem vilja bjóða sig fram til stjórnar eða formanns geta tilkynnt framboð með því að senda tölvupóst á brokey@brokey.is.
Það er samt ekki skilyrði fyrir framboði að tilkynna það fyrirfram og vel hægt að bjóða sig fram á fundinum sjálfum.
Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist til stjórnar eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Þær öðlast gildi ef þær eru samþykktar með 2/3 greiddra atkvæða. Auðir og ógildir seðlar teljast ekki með.
Siglingakveðja,
Stjórn Siglingafélags Reykjavíkur - Brokey
Hugmyndin er að leggja af stað um morguninn, laugardaginn 12. júlí klukkan 10:00, en öllum er frjálst að velja sína leið og nýta daginn á sinn hátt. Siglingaleiðin og áfangastaðurinn er valin með það í huga að allir ættu að geta tekið þátt. Einnig er hægt að nota eftirmiðdaginn í að fara í sjóböð, heita pottinn og gufuna á Ylströndinni.
Klukkan 18:00 verður kveikt á grillinu í húsnæði kænudeildar við Nauthólsvík. Best er að fólk komi sjálft með sín matvæli eftir fjölda og smekk áhafnarmeðlima, en félagið skaffar aðstöðuna, grillið, glös, diska osfrv. Öryggisbátur kænudeildar getur nýst í að skutla fólki til og frá skútunum sínum, sem verða við ankeri á Foggvoginum, nálægt Nauthólsvík, en auðvitað eru þeir sem eiga léttabáta hvattir til að taka þá með.
Fossvogur er eitt allra besta ankerislægi við Ísland og það er mikil synd að eyðileggja svæðið með brú. Framkvæmdir eru samt byrjaðar þannig að þetta verður líklega síðasta sumarið sem hægt er að ankera seglskútum í Fossvogi. Þessi hópsigling er líka gott tækifæri fyrir þá sem nota ankerið sjaldan og vilja prófa að gista um borð, í öruggu umhverfi og í góðra vina hópi. Sumir skútusiglingamenn nota ankerið mjög oft, og aðrir sjaldan, en þarna verður hægt að prófa sig áfram og fá góð ráð hjá reyndu siglingafólki. Að leggjast við ankeri á öruggan hátt er listgrein sem kemur ekki nema með æfingunni.
Það voru mörg segl á sjó í Hópsiglingu til Hafnarfjarðar í tilefni 50 ára afmælis siglingaklúbbsins Þyts.
Við fengum köku og allt saman.
Mótanefnd Brokeyjar fékk að aðstoða SÍL við undirbúning og keppnisstjórn á Faxa.
Björgunarsveitarmaður frá Akranesi fékk það hlutverk að taka myndir á þessum dýrlega degi.
Brokey býður upp á skútukaffi fyrir siglara á hverjum laugardagsmorgni í sumar frá kl. 10 - 12.
Öll velkomin.
Aðalfundur Siglingafélags Reykjavíkur – Brokeyjar verður haldinn í húsnæði ÍSÍ, í fundarsal C, sunnudaginn 16. febrúar klukkan 14:00
3. grein. Atkvæðisrétt á fundum félagsins, kjörgengi hafa allir skráðir félagar sem greitt hafa tilskilin gjöld.
Hér eru tillögur að lagabreytingum fyrir aðalfund Brokey árið 2025.
Dagskráin er eftirfarandi:
Setning aðalfundar og kosning fundarstjóra og fundarritara.
Skýrsla stjórnar lögð fram.
Skýrslur nefnda lagðar fram.
Endurskoðaðir reikningar lagðir fram og útskýrðir.
Umræða um skýrslu stjórnar, nefnda og reikninga.
Reikningar bornir upp til samþykktar.
Lagðar fram tillögur að lagabreytingum og bornar undir atkvæði.
Kosning formanns
Kosning árlega um tveggja meðstjórnenda sem eru með tveggja ára kjörtímabil og tveggja varamanna sem skipta með sér verkum.
Kosning tveggja skoðunarmanna.
Ákvörðun félagsgjalda.
Önnur mál.
Fundarslit.
Við bendum öllum þeim sem vilja bjóða sig fram til stjórnar eða formanns að hægt er að tilkynna framboð með því að senda tölvupóst á brokey@brokey.is. Það er samt ekki skilyrði fyrir framboði að tilkynna það fyrirfram og vel hægt að bjóða sig fram á fundinum sjálfum.
Við hvetjum félagsmenn til að taka virkan þátt í starfi félagsins.
Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist til stjórnar eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Þær öðlast gildi ef þær eru samþykktar með 2/3 greiddra atkvæða. Auðir og ógildir seðlar teljast ekki með.
Kveðjur,
Stjórn Siglingafélags Reykjavíkur - Brokey
Á árshátíð félagsins hlaut Brokey viðurkenninguna "Fyrirmyndarfélag ÍSÍ", hér má lesa meira um viðburðinn.
Kranadagur Brokeyjar haustið 2024 var haldinn þann 13. október kl. 12:00 við uppsátur félagsins, Gufunesi og gekk mjög vel þetta árið.
Þakkir til allra sem hjálpuðu til.
Kranadagur Brokeyjar haustið 2024 verður þann 13. október kl. 12:00 við uppsátur félagsins, Gufunesi.
🗒️ Vinsamlegast skráið bátana hér: Skráning fyrir hífingadag 13. október 2024
💡⚡️ Aðgangur að rafmagni á hífingadag
🔫 Háþrýstidæla verður á staðnum (170bör)
🚰 Aðgangur að vatni til staðar
🌊 Háflóð kl. 15:15
🪝 Tímasetning hífinga tilkynnt þegar nær dregur
🚧 Farið verður yfir öryggisatriði fyrir hífingu
🚤 Öryggisbátur verður á svæðinu til að hjálpa til
Tilkynning vegna NOR Faxaflóamót er aðgengilegt hérna.
Tilkynning um Íslandsmót kjölbáta 2024 aðgengileg hér.
Skráning fyrir Íslandsmót kjölbáta 2024 aðgengileg hér.
Tilkynning vegna NOR Faxaflóamót er aðgengilegt hérna.
Tilkynning um Íslandsmót kjölbáta 2024 aðgengileg hér.
Skráning fyrir Íslandsmót kjölbáta 2024 aðgengileg hér.
Félagsfundur þann 4. júlí 2024. Skráning fer fram hér, staðsetning verður tilkynnt
Vegna gosmengunar var ákveðið að aflýsa þriðjudagskeppninni í dag.
Vegna veðurs var ákveðið að aflýsa þriðjudagskeppninni í dag.
Tilkynning vegna NOR Faxaflóamót er aðgengilegt hérna.
Mótaskrá 2024 var samþykkt og er hún aðgengileg hérna.
Aðalfundur Siglingafélags Reykjavíkur – Brokeyjar verður haldinn í húsnæði ÍSÍ, í fundarsal C, laugardaginn 27. janúar klukkan 17:00
3. grein. Atkvæðisrétt á fundum félagsins, kjörgengi hafa allir skráðir félagar sem greitt hafa tilskilin gjöld.
Dagskráin er eftirfarandi:
Setning aðalfundar og kosning fundarstjóra og fundarritara.
Skýrsla stjórnar lögð fram.
Skýrslur nefnda lagðar fram.
Endurskoðaðir reikningar lagðir fram og útskýrðir.
Umræða um skýrslu stjórnar, nefnda og reikninga.
Reikningar bornir upp til samþykktar.
Lagðar fram tillögur að lagabreytingum og bornar undir atkvæði.
Kosning formanns
Kosning árlega um tveggja meðstjórnenda sem eru með tveggja ára kjörtímabil og tveggja varamanna sem skipta með sér verkum.
Kosning tveggja skoðunarmanna.
Ákvörðun félagsgjalda.
Önnur mál.
Fundarslit.
Við bendum öllum þeim sem vilja bjóða sig fram til stjórnar eða formanns að hægt er að tilkynna framboð með því að senda tölvupóst á brokey@brokey.is. Það er samt ekki skilyrði fyrir framboði að tilkynna það fyrirfram og vel hægt að bjóða sig fram á fundinum sjálfum. Eins er hægt að gera athugasemd við þetta fundarboð á Fésbókarsíðu félagsins og láta vita af framboði.