Tilkynning Íslandsmót Kjölbáta 2024
ÍSlandsmót kjölbáta 2024
TILKYNNING UM ÍSLANDSMÓT
KJÖLBÁTA 2024*
Siglingafélag Reykjavíkur, Brokey
14. - 18. ágúst 2024
Reglur
1.1. Keppt verður samkvæmt reglum sem tilgreindar eru í Alþjóða kappsiglingareglum 2021-2024
1.2. Einnig gilda Kappsiglingafyrirmæli SÍL.
1.3. Einnig gilda reglur IRC.
1.4. Keppnin verður ekki haldin ef keppnisstjórn hefur ekki yfirsjón yfir keppnissvæðið vegna skerðingar á skyggni.
1.5. Þegar regla 20 gildir, má bátur gefa til kynna þörf fyrir rúm til að stagvenda t.d. með kalli eða bendingum.
1.6. Mótið fellur niður ef fjórir bátar eða færri eru skráðir fyrir kl. 23:00 7. ágúst 2024.
Keppnisfyrirmæli
2.1. Kappsiglingafyrirmælin verða aðgengileg eftir kl. 12:00 10. ágúst á heimasíðu Brokeyjar, brokey.is sem og á racingrulesofsailing.com ("RRS")
2.3. Siglingafyrirmælin eru samkvæmt leiðbeiningum í RRS Viðauka S/ sjá þýðingu SÍL af sniðmáti á heimasíðu SÍL.
Samskipti
3.1 Keppnissjórn birtir upplýsingar á heimasíðu Brokeyjar, RRS og eða á upplýsingatöflu í húsnæði Brokeyjar
3.2. Keppnisstjórn notar rás 71 fyrir öll samskipti.
3.3. Á meðan á keppni stendur (tekur gildi við fyrsta viðvörunarflaut) mega keppendur ekki nota talstöðvar eða önnur samskiptatæki nema í neyðartilvikum og ef allir keppendur fá sömu upplýsingar. Þessi takmörkun gildir einnig um farsíma.
Hlutgengi, skráning og þátttaka
4.1. Mótið er opið öllum kjölbátum og dagbátum í forgjafakeppni og skal bátur hafa gilt IRC forgjafaskírteini samþykkt af SÍL.
4.2. Áhafnameðlimur verður að vera fullgildur félagi í siglingafélagi skv. móta- og keppnisreglum SÍL við skráningu á mótið.
4.3. Keppt er í opnum flokki kjölbáta með IRC forgjöf.
4.4. Hlutgenga báta skal skrá með því að senda upplýsingar um nafn báts, forgjöf, tryggingafélag, nafn skipstjóra og áhafnarmeðlimi til brokey@brokey.is, fyrir kl. 23:00 þann 7. ágúst 2024.
Afrit af gildu forgjafarskírteini skal senda rafrænt með skráningarpóstinum.
4.5. Skráning að fresti liðnum er heimiluð fram að skipstjórafundi, með 100% álagi.
4.6. Skráning telst ekki gild fyrr en öllum skráningarskilyrðum er fullnægt og þátttökugjald hefur verið greitt.
4.7 Áhafnarlista má breyta allt fram að skipsstjórafundi.
Þátttökugjald
5.1. Áskilin gjöld eru eftirfarandi: Þátttökugjald á hvern áhafnarmeðlim er kr. 12.000.
5.2. Þátttökugjald skal greitt á https://www.sportabler.com/shop/brokey.
5.3. Við greiðslu þátttökugjalds skal taka fram nafn báts sem keppt er á.
5.4. Þátttökugjald er kr. 24.000 eftir skráningarfrestur er liðinn (100% álag).
Takmarkanir um áhöfn
6.1. Eftirfarandi takmarkanir gilda um fjölda í áhöfn: Fjöldi áhafnarmeðlima er samkvæmt forgjafarskírteini.
6.2. Heimilt er að skrá varamenn í áhöfn, greitt er fyrir hámarksfjölda keppenda á bát. Ekki er greitt sérstaklega fyrir varamenn.
Auglýsingar
7.1. Bátar þurfa að sýna auglýsingar sem skipuleggjendur velja og láta í té.
Bryggjupláss
8.1. Brokey útvegar viðlegupláss fyrir þátttakendur frá og með miðvikudeginum 14. ágúst til mánudagsins 19. ágúst við Ingólfsgarð. Það þýðir ekki að lofað sé stæði með útleggjurum.
8.2. Beiðnir um viðlegupláss skal senda til stjórnar Brokeyjar á brokey@brokey.is.
Tímaáætlun
9.1. Skráningu skal í síðasta lagi lokið fyrir skipstjórafund, sbr. gr. 4.5.
9.2. Keppnisdagar / dagskrá:
Miðvikudagur 14. ágúst, skipstjórafundur kl 18:00.
Áætlaðar tvær umferðir
Fimmtudagur 15. ágúst, skipstjórafundur kl 18:00.
Áætlaðar tvær umferðir
Föstudagur 16. ágúst, skipstjórafundur kl 18:00.
Áætlaðar tvær umferðir
Laugardagur 17. ágúst, skipstjórafundur kl 09:00.
Áætlaðar fjórar umferðir
Sunnudagur 18. ágúst, keppnisdagur til vara
9.4. Fjöldi umferða er áætlaður 10.
9.5. Áætlaður tími fyrir viðvörunarmerki fyrir fyrstu keppni hvers dags er 40 mínútum eftir upphaf skipstjórafundar.
9.6. Á síðasta áætlaða keppnisdegi verður ekki gefið viðvörunarmerki eftir kl 17:00.
9.7. Keppni er ekki ræst ef vindstyrkur er undir 2m/s eða yfir 10m/s að jafnaði í brautinni.
Mælingar og skoðun
10.1. Leggja skal fram gilt forgjafarskírteini fyrir hvern bát við skráningu, sbr. gr. 4.4.
10.2. Mælingar og skoðun fara fram strax að loknum skipstjórafundi ef keppnisstjóri óskar eftir því.
10.3. Komi í ljós við mælingu og skoðun að skráning í forgjafarskírteini sé röng er óheimil þátttaka á bátnum.
Stigagjöf
11.1 Notað er lágstigakerfi skv A4.1 í viðauka A
11.2 Ljúka þarf 5 umferðum til að keppni teljist lokið.
11.3 (a) Þegar lokið hefur verið við 6 umferðir telst samanlögð stigatala úr umferðunum, að undanskilinni lökustu umferðinni, sem heildarstigatala í keppninni.
11.3 (b) Þegar lokið hefur verið við 8 umferðir telst samanlögð stigatala úr umferðunum, að undanskildum tveimur lökustu umferðunum, sem heildarstigatala í keppninni.
Takmarkanir á að bátar séu teknir á land
12.1. Kjölbátar skulu ekki teknir á land á meðan mótið stendur yfir nema að fengnu skriflegu leyfi keppnisstjórnar og í samræmi við þá skilmála sem þar eru tilgreindir.
Köfunarbúnaður og plastlaugar
13.1. Ekki skal nota öndunarbúnað til notkunar neðansjávar og plastlaugar eða samsvarandi búnað við kjölbáta frá því undirbúningsmerki fyrir fyrstu keppni er gefið og þar til móti lýkur.
13.2. Óheimilt er að þvo kjölbáta undir vatnslínu á keppnistíma frá því að mót hefst til loka móts..
Persónuvernd
14.1. Með skráningu í keppni heimila þátttakendur myndbirtingar á vegum keppnishaldara og SÍL ásamt birtingu úrslita.
Takmörkun ábyrgðar
15.1. Keppendur sem taka þátt í mótinu gera það á eigin ábyrgð. Sjá reglu 3, Ákvörðun um að keppa. Skipuleggjendur firra sig allri ábyrgð vegna skemmda, líkamstjóns eða dauðsfalla í tengslum við eða fyrir eða eftir keppni eða á meðan keppni stendur án tillits til orsakatengsla.
Tryggingar
16.1. Hver bátur skal vera tryggður og með gildri ábyrgðartryggingu sem bætir tjón sem kann að eiga sér stað.
Verðlaun
17.1. Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í heildarstigakerfi mótsins.
17.2 Verðlaunaafhending hefst kl. 19:00 laugardaginn 17. ágúst og fer fram á SKÝ bar, Center Hotels Arnarhvoll. Ef nota verður varadagur verða gerðar aðrar ráðstafanir og þær tilkynntar tímanlega.
Frekari upplýsingar
18.1 Frekari upplýsingar veitir Mótanefnd Brokeyjar og/eða stjórn Brokeyjar.
18.2. Fyrir frekari upplýsingar skal senda fyrirspurn á brokey@brokey.is og verða svör birt hér á vef Brokey.
Reykjavík, 1. júlí 2024
Uppfært 14. júlí 2024
*Keppnisreglur þessar eru birtar af stjórn Brokeyjar og Mótanefnd Brokeyjar með fyrirvara um breytingar sem kunna að vera nauðsynlegar á skipulagi mótsins.