Fréttir
15. nóvember 2024 | Árshátið Siglingafélags Reykjavíkur - Brokey þann 5. desember 2024
Við vonum að þið hafið átt frábært ár á hafinu og viljum bjóða ykkur að fagna lokum ársins með okkur á árshátíð Siglingafélags Reykjavíkur - Brokey. Siglingafélag Reykjavíkur - Brokey býður félagsmönnum, velunnurum, stuðningsmönnum og áhugafólki um siglingar á árshátíð félagsins sem haldin verður 5. desember næstkomandi. Viðburðurinn fer fram á Sky bar & lounge, Center Hotel, og hefst kl. 18:00-23:00.
Dagskráin hefst með fordrykk kl. 18:00, kl. 18:30 setning hátíðar með ræðu formanns, borðhald hefst kl. 19:00, og hátíðinni lýkur formlega kl. 23:00. Takmarkað borðapláss er í boði, um 60 sæti, svo við hvetjum áhugasama til að skrá sig sem fyrst.
Við hlökkum til að sjá sem flesta og njóta saman frábærrar kvöldstundar með góðum mat og félagsskap.
Helstu upplýsingar og skráning fer fram á skráningarforminu hérna: Skráningarform fyrir árshátíð Brokey 2024
Staðfesting á skráningu þarf að berast fyrir lok 30. nóvember.
Komdu og vertu hluti af okkar kraftmikla og skemmtilega samfélagi!
Frekari fyrirspurnir má senda á brokey@brokey.is
Með bestu kveðjum,
Siglingafélag Reykjavíkur - Brokey
13. október 2024 | Hífingadagur gekk vel, takk fyrir sumarið
Kranadagur Brokeyjar haustið 2024 var haldinn þann 13. október kl. 12:00 við uppsátur félagsins, Gufunesi og gekk mjög vel þetta árið.
Þakkir til allra sem hjálpuðu til.
29. september 2024 | Hífingadagur Brokeyjar 2024
Kranadagur Brokeyjar haustið 2024 verður þann 13. október kl. 12:00 við uppsátur félagsins, Gufunesi.
🗒️ Vinsamlegast skráið bátana hér: Skráning fyrir hífingadag 13. október 2024
💡⚡️ Aðgangur að rafmagni á hífingadag
🔫 Háþrýstidæla verður á staðnum (170bör)
🚰 Aðgangur að vatni til staðar
🌊 Háflóð kl. 15:15
🪝 Tímasetning hífinga tilkynnt þegar nær dregur
🚧 Farið verður yfir öryggisatriði fyrir hífingu
🚤 Öryggisbátur verður á svæðinu til að hjálpa til
14. júLí 2024 | Uppfært NOR Íslandsmót kjölbáta 2024
Tilkynning vegna NOR Faxaflóamót er aðgengilegt hérna.
Tilkynning um Íslandsmót kjölbáta 2024 aðgengileg hér.
Skráning fyrir Íslandsmót kjölbáta 2024 aðgengileg hér.
1. júLí 2024 | NOR Íslandsmót kjölbáta 2024
Tilkynning vegna NOR Faxaflóamót er aðgengilegt hérna.
Tilkynning um Íslandsmót kjölbáta 2024 aðgengileg hér.
Skráning fyrir Íslandsmót kjölbáta 2024 aðgengileg hér.
26. júní 2024 | Félagsfundur Brokey fimmtudaginn 4. júlí 2024
Félagsfundur þann 4. júlí 2024. Skráning fer fram hér, staðsetning verður tilkynnt
11. júní 2024 | Þriðjudagskeppni aflýst vegna gosmengunar
Vegna gosmengunar var ákveðið að aflýsa þriðjudagskeppninni í dag.
4. júní 2024 | Þriðjudagskeppni aflýst vegna veðurs
Vegna veðurs var ákveðið að aflýsa þriðjudagskeppninni í dag.
3. júní 2024 | NOR Faxaflóamót
Tilkynning vegna NOR Faxaflóamót er aðgengilegt hérna.
24. febrúar 2024 | Niðurstaða Siglingaþings 2024
Mótaskrá 2024 var samþykkt og er hún aðgengileg hérna.
13. janúar 2024 | Aðalfundur 27. janúar 2024
Aðalfundur Siglingafélags Reykjavíkur – Brokeyjar verður haldinn í húsnæði ÍSÍ, í fundarsal C, laugardaginn 27. janúar klukkan 17:00
3. grein. Atkvæðisrétt á fundum félagsins, kjörgengi hafa allir skráðir félagar sem greitt hafa tilskilin gjöld.
Dagskráin er eftirfarandi:
Setning aðalfundar og kosning fundarstjóra og fundarritara.
Skýrsla stjórnar lögð fram.
Skýrslur nefnda lagðar fram.
Endurskoðaðir reikningar lagðir fram og útskýrðir.
Umræða um skýrslu stjórnar, nefnda og reikninga.
Reikningar bornir upp til samþykktar.
Lagðar fram tillögur að lagabreytingum og bornar undir atkvæði.
Kosning formanns
Kosning árlega um tveggja meðstjórnenda sem eru með tveggja ára kjörtímabil og tveggja varamanna sem skipta með sér verkum.
Kosning tveggja skoðunarmanna.
Ákvörðun félagsgjalda.
Önnur mál.
Fundarslit.
Við bendum öllum þeim sem vilja bjóða sig fram til stjórnar eða formanns að hægt er að tilkynna framboð með því að senda tölvupóst á brokey@brokey.is. Það er samt ekki skilyrði fyrir framboði að tilkynna það fyrirfram og vel hægt að bjóða sig fram á fundinum sjálfum. Eins er hægt að gera athugasemd við þetta fundarboð á Fésbókarsíðu félagsins og láta vita af framboði.
Við hvetjum félagsmenn til að taka virkan þátt í starfi félagsins.
Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist til stjórnar eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Þær öðlast gildi ef þær eru samþykktar með 2/3 greiddra atkvæða. Auðir og ógildir seðlar teljast ekki með.
Kveðjur,
Stjórn Siglingafélags Reykjavíkur - Brokey