Afrekssjóður Brokey
Afrekssjóður Brokey
Afrekssjóður Siglingafélags Reykjavíkur – Brokey
Tilgangur Afrekssjóðs Siglingafélags Reykjavíkur – Brokey er að styðja við afreksstarf félagsmanna og efla möguleika þeirra til að ná árangri í siglingum, bæði innanlands og erlendis. Styrkir úr sjóðnum eru ætlaðir til verkefna sem styðja beint við afreksþróun, keppnisþátttöku og bætta aðstöðu til árangurs.
Einstakur styrkur úr Afrekssjóði Siglingafélags Reykjavíkur – Brokey er að hámarki 200.000 kr.
Á hverju ári eru veittir allt að 6 einstakir styrkir úr sjóðnum.
Styrkveitingar eru háðar mati stjórnar Afrekssjóðs Brokeyjar á umsóknum, markmiðum verkefna og þeim fjármunum sem eru til ráðstöfunar hverju sinni.
Sótt er um styrk á:
Umsækjandi skal leggja fram:
lýsingu á verkefni og markmiði þess,
hvernig verkefnið styður við afreksstarf umsækjanda,
kostnaðaráætlun þar sem fram kemur hvernig styrknum er ráðstafað,
aðrar upplýsingar sem geta stutt umsóknina.
Styrk er hægt að veita til kostnaðar sem tengist beint afreksstarfi, svo sem:
kaupum á siglinga-, keppnis- og öryggisbúnaði,
viðhaldi eða endurnýjun búnaðar sem nauðsynlegur er fyrir keppnisþátttöku,
þátttökugjöldum í mótum og keppnum,
ferðakostnaði vegna keppna, æfingabúða og annarra afreksverkefna,
gistingu og öðrum nauðsynlegum kostnaði vegna keppnis- og æfingaferða,
flutningi báta og búnaðar vegna keppnis- og æfingaferða,
sérhæfðri þjálfun, námskeiðum eða annarri faglegri aðstoð sem styður við afreksþróun.
Styrkir eru ekki ætlaðir til almenns rekstrarkostnaðar eða útgjalda sem ekki tengjast beint afreksverkefninu.
Styrkur er greiddur að loknu verkefni þegar styrkþegi hefur skilað lokaskýrslu vegna styrkveitingarinnar og uppfyllt skilyrði hennar.
Með lokaskýrslu skulu fylgja:
samantekt á framkvæmd verkefnisins,
sundurliðað kostnaðaryfirlit,
afrit reikninga og kvittana vegna styrkhæfs kostnaðar,
myndir og önnur gögn sem sýna hvernig styrkurinn var nýttur.
Greiðsla styrks miðast við sannanlegan styrkhæfan kostnað. Ef raunverulegur kostnaður reynist lægri en gert var ráð fyrir í umsókn getur stjórn sjóðsins endurmetið endanlega styrkupphæð.
Styrkþegi skal skila lokaskýrslu samkvæmt eftirfarandi uppbyggingu:
Í þessum kafla skal gera grein fyrir verkefninu.
Skila skal eftirfarandi köflum:
1.1. Heiti verkefnis.
1.2. Stutt lýsing á því sem gert var.
1.3. Tímabil framkvæmdar.
1.4. Hvernig verkefnið tengdist afreksmarkmiðum umsækjanda.
Í þessum kafla skal gera grein fyrir því hver markmið og ávinningur af verkefninu eru.
Skila skal eftirfarandi köflum:
2.1. Hvaða markmiðum var stefnt að.
2.2. Hvernig verkefnið stuðlaði að þróun, árangri eða þátttöku í afreksstarfi.
2.3. Helstu niðurstöður eða ávinningur verkefnisins.
Í þessum kafla skal gera grein fyrir því hvernig styrkurinn var nýttur.
Skila skal eftirfarandi köflum:
3.1. sundurliðaðri samantekt á raunverulegum kostnaði,
3.2. afritum reikninga og kvittana,
3.3. upplýsingum um hvaða útgjöld voru greidd með styrknum,
3.4. myndum eða öðrum gögnum sem staðfesta framkvæmd verkefnisins og notkun styrkfjár.
Lokaskýrsla skal sýna fram á að styrkurinn hafi verið nýttur í samræmi við umsókn og markmið Afrekssjóðs Brokeyjar.
Formaður og gjaldkeri Afrekssjóðs Brokeyjar fara yfir innkomnar umsóknir og leggja mat á þær í samræmi við markmið sjóðsins og úthlutunarreglur.
Við mat á umsóknum er heimilt að leita álits og ráðgjafar hjá einstaklingum eða aðilum sem hafa sérþekkingu eða innsýn í viðkomandi verkefni, afreksstarf eða faglegt svið þess. Slíkt samráð skal miða að því að bæta faglegt mat og tryggja vandaðri ákvarðanatöku.
Endanleg ákvörðun um styrkveitingu er tekin af stjórn Siglingafélags Reykjavíkur - Brokey.