Toppmynd19.jpg

Fréttir
Um Brokey
Kjölbátar
Kænudeild
Kappróðrar
Seglbretti
Tenglar
Myndasafn
Vefmyndavél
English
Siglinganámskeið - skráningar
MYNDIRNAR



































 
Íslandsmót kjölbáta 2010
Miðvikudagur, 04. Ágúst 2010 14:00

Íslandsmót í kjölbátasiglingum verður haldið í Reykjavík helgina 6.-8. ágúst næstkomandi. Smellið á 'nánar' til að skoða tilkynninguna. 

Fyrirkomulag varðandi mat og verðlaunaafhendingu verður nánar kynnt síðar á þessari síðu.

 

ÍSLANDSMÓT Í KJÖLBÁTASIGLINGUM

6. - 8. ágúst 2010

Haldið af
Siglingafélagi Reykjavíkur, Brokey
á sundunum við Reykjavík

TILKYNNING UM KEPPNI


1 Reglur

Keppt verður samkvæmt:

a) Kappsiglingareglum ISAF 2009 til 2012 (enski textinn gildir)
b) Kappsiglingafyrirmælum SÍL
c) Kappsiglingafyrirmælum mótsins sem afhent verða á skipstjórnafundi fyrsta keppnisdag


2 Auglýsingar
Auglýsingar eru leyfðar samkvæmt flokki C í Alþjóða kappsiglingareglunum

3 Þátttökuréttur

Rétt til þátttöku hafa einungis fullgildir félagar í siglingafélögum samkvæmt móta- og keppendareglum SÍL. Þetta á við um alla áhafnarmeðlimi báts sem tekur þátt í keppni. Brot á þessari reglu varðar brottvísun úr keppni.

4 Þátttökugjald
Þátttökugjald á hvern þátttakanda (hvern áhafnarmeðlim) er kr.2.500,-

Þátttökugjald verður innheimt á skipstjórnarfundi fyrsta keppnisdag (sjá 5. grein). Athugið að gengið verður eftir því að allir áhafnarmeðlimir séu skráðir og að þeir séu allir félagar í siglingafélagi sbr. 3. grein.

5 Tímaáætlun
Gert er ráð fyrir því að mótið standi frá hádegi föstudag til laugardagskvölds. Sunnudagurinn er hafður til vara ef aflýsa þarf keppni annan hvorn keppnisdaginn.

1. skipstjórnafundur, mótttaka þátttökugjalds og afhending kappsiglingafyrirmæla 6. ágúst kl. 13:00 (gert ráð fyrir amk. 2 umferðum). Fyrsta rásmerki kl. 14:00.
2. skipstjórnafundur 7. ágúst kl. 9:00 (gert ráð fyrir amk. 4 umferðum). Fyrsta rásmerki kl. 10:00.
Úrslit og verðlaunaafhending 7. ágúst kl. 21:00

Gert er ráð fyrir því að sigla 6 umferðir og verður einni verstu umferð sleppt við stigagjöf nema ekki náist að sigla nema 3 umferðir eða færri en þá verður engri umferð sleppt við stigagjöf.

Tímasetningar geta breyst og eru tilkynntar á skipsstjórafundi, eða gegnum talstöð (rás 6 á VHF) ásamt merkjafánum. Keppni getur verið felld niður eða frestað til annars dags samkvæmt ákvörðun keppnisstjórnar.

Laugardagskvöldið verður hátíðleg verðlaunaafhending en staðsetning hennar verður tilkynnt á skipstjórnarfundi.

6 Mælingar
Keppt verður samkvæmt IRC forgjöf og skal framvísa gildu mælibréfi fyrir alla báta. Bátar sem ekki skila inn slíku bréfi á fyrsta skipstjórnafundi verða ekki skráðir í keppni og mega ekki taka þátt. Einu gildir þótt slíku bréfi hafi áður verið skilað vegna annarra siglingamóta á vegum Brokeyjar.

7 Keppnisfyrirmæli
Keppnisfyrirmæli verða veitt á skipstjórnafundi í upphafi hvers keppnisdags.

8 Keppnisbraut
Keppt verður á sundunum við Reykjavík. Sigldar verða nokkrar umferðir um baujur.

Tilhögun keppnisbrauta verður kynnt á skipstjórnarfundi fyrsta keppnisdag.

9 Skráning
Tilkynningu um þátttöku skal senda til keppnisstjórnar fyrir kl. 22:00 miðvikudaginn 4. ágúst með athugasemd við tilkynningu um keppni á vef Brokeyjar, www.brokey.is, eða með smáskilaboðum eða símtali við keppnisstjóra (sjá 14. grein). Endanlegum áhafnarlistum skal skilað á skipstjórnafundi fyrsta keppnisdag.

10 Stigakerfi
Notað verður lágstigakerfi samkvæmt viðauka A í Alþjóða kappsiglingareglunum. Minnst þrjár umferðir skulu reiknaðar til stiga. Verði fleiri umferðir sigldar verður slökustu umferð hvers báts kastað.

11 Samskipti
Bátar skulu ekki hafa samskipti við keppnisstjórn eða sín á milli sem ekki eru opin öllum keppendum, hvorki með farsíma né talstöð, nema í neyðartilvikum.

12 Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin. Sigurvegari keppninnar hlýtur farandbikar og titilinn „Íslandsmeistari í kjölbátasiglingum árið 2010‟.

Verðlaunaafhending fer fram að kvöldi síðasta keppnisdags kl. 21:00. Staðsetning verður tilkynnt á skipstjórnafundi fyrsta keppnisdags.

13 Ábyrgð og tryggingar
Allir sem taka þátt í mótinu gera það á eigin ábyrgð.

Skipuleggjendur firra sig allri ábyrgð vegna tjóns eða líkamsskaða eða dauða í tengslum við, á undan, eða eftir eða meðan á keppni eða mótinu stendur.

Hver bátur skal vera tryggður með gildri ábyrgðartryggingu sem nær til þess tjóns sem orðið getur.

14 Frekari upplýsingar

Frekari upplýsingar fást hjá keppnisstjórum, Kjartani Ásgeirssyni í síma 698 7373 (netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ) og Áka G. Karlssyni í síma 821 3853 (netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ).

athugasemdir
Add New Search
+/-
Skrifa athugasemd
Nafn:
Netfang:
 
Titill:
 
:angry::0:confused::cheer:B):evil::silly::dry:
:lol::kiss::D:pinch::(:shock::X:side:
:):P:unsure::woohoo::huh::whistle:;):s
:!::?::idea::arrow:
 
Please input the anti-spam code that you can read in the image.
Tóti  - Threepeat   |2010-08-02 15:48:05
Dögun ISL 1782
Þórarinn Stefánsson
Magnús Arason
Magnús Waage
Steinþór  - Aquarius   |2010-08-02 21:22:31
Aquarius 2667

Steinþór Birgisson
Valgeir Magnússon
Sigurþór
Heimisson
Ásta Vilhjálmsdóttir
Mímir Völundarson
Björn Jörundur
Friðbjörnsson
Ísmolinn 2639  - Ísmolinn 2639   |2010-08-04 14:27:57
Ísmolinn ISL 2639
Gunnar Geir Halldórsson
Rúnar Steinsen
Ragnar
Hilmarsson
Trausti Ævarsson
Forgjöf 1,042
Arnar  - Lilja   |2010-08-04 14:44:01
Lilja 2720

Arnar Freyr Jónsson
Aðalsteinn Loftsson
Andri Örn
Jónsson
Haraldur Rafn Ingvason
Jón Sævar Alfonsson
Páll Hreinsson   |2010-08-04 18:02:13
Sigurborg ISL 9845

Páll Hreinsson
Axel Wolfram

"Með fyrirvara"
Xena  - Xena   |2010-08-04 18:31:04
Xena 2598

Aron Árnason
Þór Gunnarsson
Þór Fannar Þórsson
Sigurður
Magnússon
Helga Marie Þórsdóttir
Þráinn Svansson
ÓskarGunnarsson
Jón
Pétur
Xena   |2010-08-04 18:32:40
* Sigurður Magnússon
*Jón Pétur

(kom eitthvað vitlaust út)

samtals
8 manns í áhöfn
ögrun   |2010-08-04 22:09:59
Ögrun með fyirvara
mbt shoes  - MBT Shoes   |2010-08-26 06:12:23
Some kinds of link:http://www.mbtstore.org/ shoes don't actually require breaking in, link:http://www.mbtstore.org/mbt-sandals-c-50.htm l made out of leather
and you have to wear them.There are some cheap link:http://www.mbtstore.org/ on mbtstore.org,such as link:http://www.mbtstore.org/mbt-sandals-c-50.htm l sandals,mbt shoes
kisumu sandals,mbt chapa, link:http://www.mbtstore.org/mbt-sandals-c-50.htm l sandals.Take a good link:http://www.mbtstore.org/ is amazing.Many technological advances in
the link:http://www.monclersale.us/ and also in link:http://www.cheap-timberlandboots.net/.Moncle r jacket so have
designed the wears. You would not only stay warm but also will look up to
link:http://www.monclersale.us/ which can keep a person warm during the
freezing iciness. link:http://www.cheap-timberlandboots.net/ had been chosen to be the
official manufacturer. link:http://www.monclersa...
MBT  - mbt   |2010-08-26 06:12:36
Some kinds of MBT shoes don't actually require breaking in,Mbt sandals made out
of leather and you have to wear them.There are some cheap mbt shoes clearance on
mbtstore.org,such as mbt habari sandals,mbt shoes kisumu sandals,mbt chapa,mbt
fora sandals.Take a good MBT shoes is amazing.Many technological advances in
the moncler and also in timberland boots uk.Moncler jacket so have designed the
wears. You would not only stay warm but also will look up to moncler down
jackets which can keep a person warm during the freezing iciness.timberland
boots sale had been chosen to be the official manufacturer.Moncler 2010 is hot
sale.We also provide timberland boots and good quality moncler jackets.answer

3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved."

 
 





Skilaboðaskjóðan
Öll skilaboð
Mack: I am looking for any opportunities to gain experience in sailing. tel: 8989916:
Bjór: er betri (við vissum það nú) tengill
Kabbátur: veit ekki hvort kókaínsmyglararnir hafi verið á svona kafbáti. Þessi er alla vega flottur og kostar örugglega eitt tonn af kóki: tengill
SIL: Gerð verður Gill pöntun í vikulok. Til að panta skoðið vöruna á tengill sendið vörunumer og stærð á sil@isisport.is Verðin eru þau sömu hér og í UK vsk og flutningur innifalin
Nafn: Skilaboð
Kjartan: Hér er startið: tengill
visir: Stórar skútur: tengill
Snorrabúð : orðin stekkur - nú er léleg þjónusta okkar við erlenda gesti farin að fréttast um Evrópu- við tókum verkið að okkur með góðum sjálboðaliða Snorra en í fjarveru hans er Snorrabúð orðin stekkur
Snorrabúð: Við þurfum að sýna sóma okkar að skila þessu móttökuhlutverki aftur til hafnarinnar fremur en að hafa jafn slæma þjóustu sem innan nokkurra vikana verður saga margra rituð í erlind siglingabloöð.. Brokey á að halda sig við það sem félagið getur verl að vera einkaklúbbur 7 keppsiglingabáta og stjórnarmanna sem nota eigur félagsins í einkaþágu svona með 2007stílnum
Keppnisstj.: Nú verður staðan reiknuð út í þriðjudagskeppnum og sá sem er fyrstur heldur næstu keppni.
Baldvin: Sá sem setti inn þessi nafnlausu skilaboð hér á undan hlýtur að taka að sér djobbið, að taka á móti gestaskútum, starfið er laust eftir því sem ég best veit.
Baldvin: Svo væri allt í lagi að gera sér örlitla grein fyrir hversu mikinn tíma og vinnu stjórnarmeðlimir leggja fram í sjálfboðavinnu og væri þá nóg að kíkja við í Nauthólsvíkinni. Það lýsir fámuna vanþekkingu að drulla yfir stjórnarmeðlimi með þessum hætti.
Kjörbúð: Ég legg til að við hækkum félagsgjöldin enn frekar svo hægt sé að ráða starfsmann til að þjónusta erlendar skútur.
Sjósund: tengill
Birgir Ari: NOR fyrir Sumarmót Ýmis komin á heimasíðu Ýmis, ýmir.is
Nafn: Skilaboð
hilmar: er að leita mér að micro 18 skútu.. kaldalons@hive.is ef þið eruð með eitthvað
Baldvin: Hildur er flott: tengill
Makríll: Smjörsteiktur: tengill
Skútustrand: tengill
Brokey: Brokey í fyrsta, öðru, þriðja og fjórða sæti á Sumarmóti Ýmis tengill
Maggi Jóns: Er ekki kænumót á morgun Sunudag eða var það í dag líka, hvergi auglýst???
Nei: það er næstu helgi
Pétur: Myndir frá Síðsumarsmóti Ýmirs tengill
Flottur: tengill
Myndir: Flottar myndir frá Sumarmótinu.
Keppnisstj.: Munið að tilkynna þátttöku hér á síðunni tiímanlega, það bætast 500kr. við of seinar skráningar.
Snekkja: tengill
Hvalur: tengill
Ofursnekkja: tengill
sumarmót: hvenær koma niðurstöðurnar úr sumarmótinu inná síðuna ???
Captain Asi: NOR fyrir Íslandsmót, hvenar koma þær?
Captain Asi: Kjölbáta
Captain Asi: Kjölbáta
Captain Asi:
Kjartan: NOR fyrir Íslandsmótið er á leiðinni!
Soffi: Hey hafið þið siglt á milli landa? Hvaða réttindi þarf til þess? pung?
Jarl: Ég veit ekki betur en að þú þurfir gild skipstjórnarréttindi fyrir þann bát sem þú siglir útgefin af upprunalandi, á Íslandi væri það þá pungaprófið en ef báturinn er skráður í öðru landi gilda þarlendar reglur.
Úlfur: Pungurinn dugar í margt en ekki þetta hann er að mig minnir innan 50 mílna. Hér á landi er ekki gefin út sérstök réttindi fyrir úthafssiglingar skemmtibáta. Menn hafa þó nýtt sér Yachtmaster próf RYA sem eru viðurkennd víða um heim.
(: Ísafjörður verði sportbátamiðstöð? tengill
Jarl: Úlfur hefur rétt fyrir sér að vanda, um þetta er fjallað hér í 17 grein -> tengill
Soffi: frábært, þá er bara að fara að undirbúa 2. stigs skippernám :) Ég hélt að recreational væri slakari á kröfunum.
Úlfur: Það á í raun eftir að semja kröfurnar fyrir skemmtibáta. Það gætir ákveðins ójafnvægis fyrir þá sem skráðir eru hér á landi og þá sem skráðir eru erlendis. Það að sigla á milli landa krefst aukinnar þekkingar heldur en strand siglingar. Það er hægt að sleppa á milli landa en þegar hætta skapast þá þarf reynslu og þekkingu til að takast á við þær aðstæður.
Soffi: Því er ég alveg sammála, og vill læra akkúrat það, ekki meðferð afla 101 osfrv. :) Sýnist brautin að YM Ocean vera ódýrari og styttri en 2. stigið :)
Gunnar Geir: Verður Íslandsmót 2010 er bara að fara til eyja og veit ekkert en um þetta mót eða skráningu svo maður verður bara að sjá til með það
Octopus: Þessi stóra snekkja kemur að Ægisgarði föstudag kl. 7:30. Hún er aðeins einum metra styttri en Brúarfoss!!! tengill
Pungur: og ekki dugir pungur á þennan kolkrabba
Kjartan: NOR-ið er komið á síðuna og síðasti skráningardagur er 4.ágúst. Vonandi kemstu á netið í Eyjum
Keppnisstj.: Munið að skrá bátinn tímanlega í íslandsmótið, áhafnarlistann má endanlega klára fyrir skipsstjórafund.
Markus: Soffi til að geta tekið YM verklegt próf þarftu að hafa ákveðna reynslu sem er skilgreind af RYA. Strendur Íslands eru fínar til að undirbúa sig fyrir siglingar milli landa. Þú þarft bara að fara út þegar veður eru válind og hafa bát og áhöfn sem getur tekist á við aðstæðurnar. Þetta snýst um reynslu ekki hvað þú
Markus: lærir á skólabekk. Pungaprófið sem ég tók er sambærilegt við bóklega YM prófið.
hilmar: er að leita mér að micro 18 skútu eða sambærinlegri kaldalons@hive.is eða 8478531
víkingur: Almennilegur bátur til sölu tengill
3.ágúst: Dís stjórnar þriðjudagskeppninni!
4. ágúst: Síðasti dagur til að skrá sig á íslandsmótið!
Harpa: ónýt tengill
Úlfur: Bendi á lið 3 í NOR að allir sem keppa verða að vera í siglingafélagi
Keppandi: Hvernig sýnir maður fram á það?
Soffi: Markus: já, ég er að reyna að púsla þessu saman, er með punginn og atvinnuréttindi (xx þúsund tímar á sjó) og hef eitthvað siglt mótorskemmtibátum. Ætla að ath. hvað ég get skrapað í YM reynsluna eða hvort ég þurfi kjölbátareynslu
Myndskeið: Nýtt á siglingarásinni: tengill
Markús: Soffi ég er að fara að hitta Martin hjá A1 RYA trainig senter í Alcudia Mallorda á morgun föstudag. Ef það er eithvað sem þú vilt vita um YM þá á hann að geta svarað því. Ef þú villt safna í reynslubankann þá er ég að skoða að sigla frá Gibraltar til St.Lucia með viðkomu á kanarí í nóvember.
Úlfur: Varðandi skráningu í siglingafélög þá eru allir félagar í siglingafélögum skráðir í gagnagrunn Felix. Séu menn ekki skráðir þar þá þurfa þeir að ræða við stjórn síns félags.
vikar : tengill
Baldvin: Ég sé að maður þarf að fara að setja sig í stellingar fyrir næsta ár. Það verða einhverjir að stöðva þessa sigurgöngu, eða taka þátt í henni.
Nafn mmm: Skilaboð Þú gætir reynt
Svipan: tengill
RUV: Fréttir frá Íslandsmóti tengill
10.ágúst: Ögrun stjórnar þriðjudagskeppninni!
Tímar: er hægt að sjá tímana í Íslandsmótinu?
Áki: Skal skella tímunum inn í töfluna við tækifæri
jijijijijij: Skútuseríurnar verða að duga á menningarnótt: tengill
Máni: Þarf ekki líka að endurnýja neyðarblysin reglulega?
Áki: Tímarnir eru komnir inn
SÍL: Æfingabúðir SÍL 2010 á vef ISAF tengill
Octopus: Vil vera fyrir Íslandsmeistaramótum tengill
Heppni?: Nei, reikningsíþrótt tengill
Baldvin: Það verður greinilega að fá MS til að sponsora siglingamót á Íslandi.
snekkjusmið: tengill
nökkvi: hulda og hilmar enduðu í 1
Glæsilegt: frábært til hamingju
Haukur Holm: Ég sá ekki betur í gær en að brúnt svarf lægi yfir nokkrum skútum. Mig grunar að það hafi borist frá Hörpu. Ef rétt er, er þá ekki rétt að þeir láti hreinsa þetta?
Nökkvi: Myndir og fl frá Íslandsmóti tengill
Harpa logar: tengill
17. ágúst: Sigurborg stjórnar þriðjudagskeppninni!
dv: tengill
ruv: tengill
rykið sest: tengill
siglinganet: tengill
siglinganet: tengill
siglinganet: Einverra hluta þá skemmir skjóðan slóðina og hún virkar ekki
siglinganet: Einverra hluta þá skemmir skjóðan slóðina og hún virkar ekki
siglinganet: tengill
Myndasafn: tengill
OMG: tengill
24.ágúst: Ásdís stjórnar þriðjudagskeppninni!
Djúpið: tengill
:: Myndband úr þriðjudagskeppni á siglingarásinni: tengill
Sedov: tengill
:
Nafn: Skilaboð
Fleiri siglingafréttir


Siglingafélag Reykjavíkur – Brokey

Ingólfsgarði // Gömlu höfninni í Reykjavík // Sími 552 8272 // brokey@brokey.is

Gert af Valberg & Magga Ara