Blauta rokið
Þessi skemmtilegi Skoti setti svip á þennan þriðjudag, hann komst í klandur þegar hann ætlaði frá bryggju. Vindurinn stóð á bryggjuna og bógskrúfan gerði lítið gagn. Í þokkabót var hann einn um borð. Með hjálp góðra manna losnaði hann úr prísundinni örlítið hruflaður, þ.e. báturinn. Að launum runnu pulsurnar niður með bjór þennan þriðjudaginn. Hann var ekkert nískur þessi Skoti! Ef pulsurnar hefðu ekki runnið niður með bjór þá hefðir rigningin getað séð um það og rokið jafnvel feykt þeim ofan í kok. Rennandi blautt rokið hamaðist á keppendum sem voru þó furðu margir. Áhöfnin á Þernu sigldi vel og sigraði verðskuldað …